8.87 | Sigurjón Pétursson Á | Melavelli | 18. júní 1911 |
9.50 | sami | Melavelli | ?? ???? 1911 |
9.53 | sami | Melavelli | 3. ágúst 1913 |
9.95 | Guðmundur K. Guðm. Á | Melavelli | 20 júní 1914 |
10.12 | Tryggvi Gunnarsson Á | Melavelli | 17. júní 1920 |
10.83 | Frank Fredericksson ÍR | Melavelli | 28. ágúst 1920 |
11.03 | Sigurður Ingvarsson Þór | Vestm.eyjum | 6. ágúst 1927 |
11.27 | Þorsteinn Einarsson Á | Melavelli | 18. maí 1930 |
11.55 | Marino Kristinsson Á | Melavelli | 18. júní 1930 |
11.85 | Þorsteinn Einarsson Á | Melavelli | 6. sept. 1930 |
11.85 | Marino Kristinsson Á | Melavelli | 17. júní 1931 |
12.07 | sami | Melavelli | 17. júní 1931 |
12.40 | Þorsteinn Einarsson Á | Melavelli | 16. sept 1931 |
12.65 | sami | Melavelli | 2. okt. 1931 |
12.91 | sami | Melavelli | 18. júní 1932 |
13.03 | Kristján Vattnes KR | Melavelli | 18. júní 1936 |
13.12 | sami | Melavelli | 18. júní 1936 |
13.43 | sami | Melavelli | 20. júní 1937 |
13.48 | sami | Melavelli | 27. júlí 1937 |
13.53 | sami | Melavelli | 28. ágúst 1938 |
13.74 | sami | Melavelli | 31. ágúst 1938 |
14.31 | Gunnar Huseby KR | Melavelli | 26. maí 1941 |
14.63 | sami | Melavelli | 25. ágúst 1941 |
14.79 | sami | Melavelli | 19. júlí 1942 |
15.32 | sami | Melavelli | 19. júní 1944 |
15.50 | sami | Melavelli | 11. júlí 1944 |
15.57 | sami | Melavelli | 17. júní 1945 |
15.69 | sami | Melavelli | 8. júlí 1946 |
15.82 | sami | Bislet | 5. júlí 1949 |
15.89 | sami | Skien | 9. júlí 1949 |
15.93 | sami | Rauland | 10. júlí 1949 |
16.41 | sami | Haugasundi | 18. júlí 1949 |
16.74 | sami | Brüssel EM | 25. ágúst 1950 |
17.34 | Guðmundur Hermannsson KR | Melavelli | 18. maí 1967 |
17.42 | sami | Melavelli | 25. maí 1967 |
17.44 | sami | Laugardalsvelli | 7.júní 1967 |
17.78 | sami | Dublin | 24. júní 1967 |
17.81 | sami | Laugardalsvelli | 13. júlí 1967 |
17.83 | sami | Melavelli | 11. ágúst 1967 |
18.21 | sami | Melavelli | 24. maí 1968 |
18.45 | sami | Melavelli | 31. maí 1968 |
18.48 | sami | Melavelli | 28. maí 1969 |
18.58 | Hreinn Halldórsson KR | Stokkhólmi | 3. júlí 1974 |
18.59 | sami | Laugardalsvelli | 6. ágúst 1974 |
18.90 | sami | Selfossi | 7. ágúst 1974 |
18.99 | sami | Melavelli | 15. maí 1975 |
19.46 | sami | Melavelli | 4. okt. 1975 |
19.53 | sami | Bratislava | 3. júní 1976 |
19.97 | sami | Laugardalsvelli | 2. júlí 1976 |
20.24 | sami | Laugardalsvelli | 14. júlí 1976 |
20.70 | sami | Kópavogsvelli | 14. maí 1977 |
21.09 | sami | Stokkhólmi | 4. júlí 1977 |
21.26 | Pétur Guðmundsson HSK | Varmárvelli | 10. nóv. 1990 |
aths.:
Þrátt fyrir mikla leit hefur ekkert fundist um
dagsetningu 9,50 metra kúluvarps Sigurjons Péturssonar árið 1911. Hann bætti um
betur á ÍR-mótinu árið 1913 en fjölmiðlar sögðu það mót hafa verið einir
dagamunurinn sem gerður var í bænum það sumar.
Á skránni eru þrjú afrek sem viðurkennd eru
sem lögmæt en voru aldrei staðfest sem met. Þar er fyrst um að ræða 10,83 metra
kast Vestur-Íslendingsins og flugmannsins Frank Fredericksson á Melavelli 28.
ágúst 1920. Í öðru lagi var aldrei sótt um staðfestingu á árangri Sigurðar Ingvarssonar
í Vestmannaeyjum 6. ágúst 1927 en þar varpaði hann fyrstur manna yfir 11 metra.
.
Skemmri árangur Kristjáns Vattnes á Melavelli 18.
júní 1936 var ekki staðfestur sem met, enda varpaði hann lengra í sömu keppni
og ekki var venjan að staðfesta nema besta kast í einni og sömu keppni.
Er Þorsteinn Einarsson, síðar íþróttafulltrúi
ríkisins, varpaði 11,27 vorið 1930 var félagi hans úr Ármanni, Marino
Kristinsson, einnig yfir gamla staðfesta metinu með 10,83 m.
Eftir að hafa sigrað og sett met (11,85) á
Allsherjarmótinu 1931 reyndi Marino við nýtt met í aukatilraunm og tókst það
því þá náði hann 12,07 metra kasti.
Hið sama er að segja um sigurkast Kristjáns
Vattnes á Allsherjarmótinu 1936, 13,12 komu í sérstakri aukakeppni um met, eins
og tíðkaðist oft á þeim tíma. Kristján endurtók þetta svo á MÍ 1938, sigraði í
mótinu, að vísu ekki á meti, en í sérstökum metatilraunum eftir meginkeppnina
komu 13,53 metrar. Þetta var talið gott og gilt í þá daga.
meira síðar . . .
No comments:
Post a Comment