2:16.0 | Ármann | Melavelli | 19. júní 1934 | |
2:15.7 |
RVK-sveit drengja |
Melavelli |
7. sept 1935 |
|
Gunnar Sigurðsson ÍR, Stefán Guðmundsson KR, Haraldur Guðmundsson KR, Einar Gíslason Á | ||||
2:14.0 |
KR |
Melavelli |
20. júní 1936 |
|
Sveinn Ingvarsson, Stefán Guðmundsson, Georg L.Sveinsson, Garðar S. Gíslason | ||||
2:13.2 |
RVK-úrval |
Vestmannaeyjum |
15. ágúst 1936 |
|
Ólafur Guðmundsson KR, Guðmundur Sveinsson ÍR, Garðar S. Gíslason KR, Georg L. Sveinsson KR | ||||
2:11.6 |
KR |
Melavelli |
17. júní 1937 |
|
Sveinn Ingvarsson, Ólafur Guðmundsson, Garðar S. Gíslason, Ingvar Ólafsson | ||||
2:07.0 |
KR |
Melavelli |
27. júlí 1937 |
|
Georg L. Sveinsson, Garðar S.Gíslason, Ólafur Guðmundsson, Sveinn Ingvarsson | ||||
2:05.4 |
KR |
Melavelli |
1. sept 1937 |
|
Georg L. Sveinsson, Garðar S. Gíslason, Ólafur Guðmundsson, Sveinn Ingvarsson | ||||
2:04.1 |
ÍR |
Melavelli |
17. júní 1945 |
|
Haukur Clausen, Hallur Símonarson, Finnbjörn Þorvaldsson, Kjartan Jóhannsson | ||||
2:02.5 |
ÍR |
Melavelli |
17. júní 1947 |
|
Örn Clausen, Finnbjörn Þorvaldsson, Haukur Clausen, Kjartan Jóhannsson | ||||
1:58.6 |
ÍR |
Stokkhólmi |
29. ágúst 1947 |
|
Örn Clausen, Finnbjörn Þorvaldsson, Haukur Clausen, Kjartan Jóhannsson | ||||
1:57.3 |
Ármann |
Melavelli |
2. sept. 1951 |
|
Matthías Guðmundsson, Grétar Þorsteinsson, Hörður Haraldsson, Guðmundur Lárusson | ||||
1:55.85 |
KR |
Valbjarnarvelli |
12. ágúst 1981 |
|
Jón Oddsson, Vilmundur Vilhjálmsson, Stefán Hallgrímsson, Oddur Sigurðsson | ||||
Landssveitir: |
1:58.6 |
Landssveit |
Melavelli |
26. júní 1948 |
Finnbjörn Þorvaldsson, Trausti Eyjólfsson, Haukur Clausen, Reynir Sigurðsson | ||||
1:56.1 |
Landssveit |
Melavelli |
4. júlí 1950 |
|
Örn Clausen, Haukur Clausen, Ásmundur Bjarnason, Guðmundur Lárusson | ||||
1:55.0 |
Landssveit |
Ósló |
2. sept. 1950 |
|
Finnbjörn Þorvaldsson, Haukur Clausen, Ásmundur Bjarnason, Guðmundur Lárusson | ||||
Aths.
Fyrstu fimm metin eru sett í keppni þar sem hlaupið var 400 – 300 – 200 - 100 metrar. Eftir það var röðinni snúið við, byrjað á 100 og endað á 400, og keppt þannig allar götur síðan.
Fyrsta metið var sett á á Allsherjarmótinu 1934 en ítarleg leit að nöfnum hlauparanna hefur engan árangur borið.
Annað metið setti Reykjavíkursveit drengja og var enginn keppendanna eldri en 18 ára. Veður var þá ekki hagstætt, sólarlaust og kalt og hefur því meira búið í þessari efnilegu sveit sem var körlum sterkari.
Tvö met voru sett í bæjarkeppni Reykjavíkur og Vestmannaeyja 1936 og 1937. Í Eyjum var sveitin ræst af stað með klút. Árið eftir skipuðu eintómir KR-ingar borgarsveitina. Á móti þessu kepptu Svíar í nokkrum greinum og sigruðu m.a. í boðhlaupinu á 2:05,6 mín. Var þetta í fyrsta sinn í sögu frjálsíþróttanna hér landi að fengnir voru hingað útlendir íþróttamenn til að keppa við hérlenda íþróttamenn.
Þegar ÍR-ingar settu metið í Stokkhólmi og voru fyrstir til að rjúfa tveggja mínútna múrinn fengu þeir keppni af franskri sveit sem sigraði á 1:58,0 mín. Í methlaupi Ármenninga 1951 – met sem lifði í 30 ár, var tekinn tími á 400 metra spretti Guðmundar Lárussonar, 48,4 sekúndur.
Þar sem afrekið var aðeins jafngott félagssveitameti ÍR var talið að um met væri að ræða þegar landssveitin hljóp á 1:58,6 mín. í landskeppni við Noreg á Melavelli 1948. Í landssveitinni voru þrír ÍR-ingar, Finnbjörn, Haukur og Reynir, ásamt Trausta Eyjólfssyni úr KR.
No comments:
Post a Comment